Bílstjórar í Baughúsum til fyrirmyndar

Lögreglubílar
Lögreglubílar mbl.is/Eggert Jóhannesson

Allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar í Baughúsum í Reykjavík í dag.

Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var fylgst  með ökutækjum sem var ekið Baughús í vesturátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru reyndar aðeins sjö ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum ekið á löglegum hraða en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Baughúsum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka