Þriðjungur andvígur háspennulínu

Háspennulínur
Háspennulínur mbl.is/Þorvaldur Örn Kristmundsson

Rúmur þriðjungur almennings er andvígur fyrirhugaðri háspennulínu Landsnets yfir hálendið um Sprengisand, en 28,6%, eru henni fylgjandi. Þetta kemur fram í könnun sem Capacent Gallup vann fyrir Landvernd.

Í könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir tæpu ári reyndust 56% hlynnt því að þjóðgarður yrði stofnaður á miðhálendinu en 17,8% voru því andvíg.

„Skipulagsstofnun hefur nýverið auglýst tillögu að landsskipulagsstefnu 2013-2024. Samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir tveimur mannvirkjabeltum þvert yfir hálendið þar sem gert er ráð fyrir meiriháttar framkvæmdum.

Annað belti er fyrirhugað um Kjöl en hitt um Sprengisandsleið. Landsnet hefur lýst áformum sínum um að reisa háspennulínu fyrir stóriðju á Sprengisandsleið með tilheyrandi vegagerð og Landsvirkjun og Orkuveita Reykjavíkur undirbúa virkjanir á þessum svæðum, segir í tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert