Haustið er farið að setja svip sinn á borgina sem er orðin ansi litskrúðug. Gulnuð lauf eru tekin að falla af trjágreinum og hrannast nú upp á götum borgarinnar og borgarbúar eru hvattir til að senda inn ábendingar á vef Reykjavíkurborgar um hvar sé þörf á að sópa.
Hiti septembermánaðar var nálægt meðaltali þótt mánaðarins verði líklega helst minnst fyrir óvenjulegt hríðarveður á Norðurlandi um miðjan mánuðinn. Á næstu dögum er búist við kólnandi veðri og um helgina og í byrjun næstu viku er gert ráð fyrir að hitinn verði einungis á bilinu 0-7 gráður.