Íslandi bjóðast lakari vextir en Írum á lánum sem Norðurlandaþjóðirnar veittu í kjölfar efnahagshrunsins. Helgi Hjörvar, formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs, og efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis vill fá skýringu á þessu frá ríkisstjórnum Norðurlandanna.
Ísland samdi við Danmörku, Svíþjóð, Noreg og Finnland sumarið 2009 um stuðning í kjölfar efnahagshrunsins í formi gjaldeyrisláns að upphæð 1.775 milljónum evra. Vaxtakjörin á láninu eru 3 mánaða EURIBOR vextir, að viðbættu 2,75 prósentu álagi.
Síðar gerðu Danmörk og Svíþjóð einnig sambærilegan tvíhliða lánasamninga við Írland. Þar eru vaxtakjörin talsvert betri, eða 3 mánaða EURIOBOR vextir að viðbættu 1 prósentu álagi.
Helgi Hjörvar hefur nú beint þeirri fyrirspurn til norrænu ríkisstjórnanna hvers vegna Íslandi bjóðist lakari vaxtakjör en Írlandi, og hvort þær hyggist endurskoða vaxtakjörin á láni til Íslands, sérstaklega í ljósi þess að skuldatryggingarálag Íslands sé lægra en Írlands.