Fjölþjóðlega æfing sprengjusérfræðinga, Northern Challenge, hefur staðið yfir á Íslandi undanfarna daga.
Æfingar hafa farið fram á Keflavíkurflugvelli og á fyrrverandi varnarsvæðum utan hans, í höfninni í Helguvík, Patterson-svæðinu og í Hvalfirði, að því er segir á vef Landhelgisgæslunnar.
Æfingin er haldin hér á landi í tólfta sinn en að henni standa Landhelgisgæsla Íslands og NATO. Að þessu sinni taka um tvö hundruð liðsmenn frá tíu löndum þátt í æfingunni en þau eru auk Íslands: Danmörk, Noregur, Svíþjóð, Þýskaland, Holland, Belgía, Frakkland, Austurríki og Bandaríkin.
Tilgangur Northern Challenge er að æfa viðbrögð við hryðjuverkatilfellum þar sem heimatilbúnum sprengjum hefur verið komið fyrir. Búinn er til samskonar búnaður og fundist hefur víðsvegar um heim og aðstæður hafðar eins raunverulegar og hægt er. Einnig er rannsóknarþátturinn tekinn fyrir þar sem ákveðin teymi hafa einungis þann tilgang að rannsaka vettvang og fara yfir sönnunargögn.
Reynslan frá æfingum þessum hefur gert starfsmönnum Landhelgisgæslunnar kleift að fara utan sem friðargæsluliðar til að taka þátt í mannúðarstarfi sem unnið hefur verið í Líbanon og Írak. Þar hefur starf sprengjusérfræðinga falist í að hreinsa sprengjur af átakasvæðum og er það mikilvægur þáttur í uppbyggingarstarfi því sem fer fram til að skapa friðvænleg skilyrði til framtíðar. Víða er mikið starf óunnið. Talið er að 90% þeirra sem látast af völdum sprengja á átakasvæðum séu börn. Mjög mikilvægt er að þjóðir sameinist í hreinsun svæðanna en slík hreinsun er eðli málsins samkvæmt hættuleg og mikilvægt er að rétt sé að verki staðið, segir á vef Landhelgisgæslunnar.