Framsóknarfólk í Norðausturkjördæmi hefur verulegar áhyggjur af stöðunni sem upp er komin í kjördæminu. Framkvæmdastjórn Framsóknarflokksins hefur lýst yfir stuðningi við framkvæmdastjóra flokksins, Hrólf Ölvisson, en Höskuldur Þór Þórhallsson hefur beðið Hrólf að segja af sér. Fjallað er um málið á vef Vikudags.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður flokksins, og Höskuldur Þór Þórhallsson þingmaður vilja báðir fara fyrir framboðslista flokksins og vill hvorugur þeirra gefa eftir. Eins og staðan er í dag, virðist flest benda til þess að kosið verði á milli formannsins og þingmannsins.
Framkvæmdastjórn fer með umboð miðstjórnar milli miðstjórnarfunda. Stjórnin hefur nýverið rætt kröfu Höskuldar um að framkvæmdastjóri flokksins íhugi afsögn, eins og Höskuldur krafðist. Framkvæmdastjórn skipa formaður flokksins, varaformaður, ritari, formaður þingflokks og formenn SUF og LFK. Eftir umræður lýsti framkvæmdastjórnin yfir stuðningi við framkvæmdastjórann. Höskuldur segir að þessi afstaða komi ekkert sérstaklega á óvart og hann segir sömuleiðis að hún veiki ekki stöðu sína innan flokksins.
Sigmundur Davíð og Höskuldur hafa fundað að minnsta kosti í tvígang á undanförnum dögum, þar sem framboðsmál hafa verið sérstaklega á dagskrá. Þessir fundir voru að mestu árangurslausir, formaðurinn og þingmaðurinn eru báðir ákveðnir í að fara fyrir framboðslistanum. Það er sem sagt stál í stál í þessari sérkennilegu deilu, segir í frétt Vikudags.