Hálfreyktur vindill sem Winston Churchill reykti þegar hann heimsótti Íslandi 16. ágúst árið 1941 er til sölu. Vindlar þykja eitt af höfuðeinkennum Churchill og fékk hann sér einn slíkan í heimsókn sinni í Alþingishúsið.
Eftir að Winston Churchill hafði undirritað Atlantshafssáttmálann ásamt Roosevelt, þáverandi Bandaríkjaforseta, kom hann í heimsókn til Íslands 16 ágúst árið 1941.
Churchill flutti meðal annars ræðu á svölum Alþingishússins fyrir fjölda manns sem saman var kominn að bera þjóðhöfðingjann augum á Austurvelli.
Hálfreyktur vindill sem hann skyldi eftir sig í öskubakka í Alþingishúsinu er ennþá til í fórum Hjörleifs Hilmarssonar en faðir hans Hilmar Árnason var staddur á Alþingi þegar Churchill var þar.
Náði vindlinum á undan blaðamanni
Í frétt Mbl frá árinu 2008 segir: „Hann lagði vindilinn frá sér við eina súluna í alþingishúsinu. Lengi vel áttum við úrklippu úr dagblaði þar sem sjá mátti Churchill og vindilinn við súluna. Blaðamaðurinn sem tók þá mynd ætlaði að ná vindlinum en pabbi varð á undan honum. Hann var alltaf þarna meira og minna því afi minn, Árni Bjarnason, var þingvörður á Alþingi á þessum tíma.“
BBC greinir frá því að árið 2010 var hálfreyktur vindill sem Churchill hafði skilið eftir á ríkisstjórnarfundi hafi verið seldur á uppboði fyrir 4.500 pund sem svarar til rétt tæpra 900 þúsund króna íslenskra.
Heimsókn Churchills rædd
Vindillinn sem nú er til sölu, verður til sýnis á hádegisverðarfundi Churchill klúbbsins sem haldin verður að Nauthóli á morgun laugardaginn 6. október og hefst kl. 12 á hádegi. Þar mun Illugi Jökulsson fjalla um Íslandsheimsókn Churchills sem stóð daglangt, hvað hann gerði, hverja hann hitti og hvaða þýðingu hún hafði. Hádegisverðarfundurinn er öllum opin en skrá þarf þátttöku.
Hægt er að bóka miða á hádegisverðarfundinn á slóðinni http://www.aha.is/churchill.