Tveimur mönnum lenti saman á þvottaplani Olís á Húsavík. Annar maðurinn lenti undir í átökunum og meiddist lítillega.
Að sögn lögreglunnar á Húsavík er líklegt að málið eigi sér forsögu frá fyrri tíð.
Þolandinn er fæddur árið 1975 en gerandinn árið 1982. Málið er til rannsóknar en ekki er búið að kæra í málinu. Lögreglan segir óvíst hvort af því verður.