Ráðstöfunartekjur heimilanna hækkuðu árið 2011 um 9,6% frá fyrra ári. Ráðstöfunartekjur á mann jukust um 9,3% milli ára og kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann um 5,1%.
Ráðstöfunartekjur heimilanna má skilgreina sem samtölu launatekna, eignatekna, tilfærslutekna og reiknaðs rekstrarafgangs en að frádregnum eigna- og tilfærsluútgjöldum.
Heildartekjur heimilanna hækkuðu um 6,7% frá árinu 2010 til 2011. Þar af var 7,4% hækkun á heildarlaunatekjum, 10,2% hækkun á tilfærslutekjum og 6,5% hækkun á rekstrarafgangi einstaklingsfyrirtækja.
Heildareignatekjur lækkuðu um 17,4% milli ára. Hækkun heildareigna- og tilfærsluútgjalda nam 2,7% vegna 8,4% hækkunar tilfærsluútgjalda, en eignaútgjöld lækkuðu um 19,5% árin 2010 til 2011, segir í frétt á vef Hagstofu Íslands.