Leikarinn Chris Hemsworth sem þekktastur er fyrir leik sinn í myndunum Thor og Avengers kom í gær til Íslands til að vera viðstaddur tökur á framhaldsmynd um þrumuguðinn Þór.
Myndin mun bera heitið Thor: The Dark World og kemur út árið 2013. Hemsworth leikur þrumuguðinn Þór í myndinni en handritshöfundar sóttu innblástur til norrænnar goðafræði við persónusköpun í myndunum.
Hemsworth er ástralskur og var nefndur meðal þeirra leikara sem þykja hvað líklegastir til þess að komast á lista eftirsóttustu leikara Hollywood af Hollywood Reporter árið 2011.
Meðal leikara í myndinni eru Anthony Hopkins, Natalie Portman og Stellan Skarsgård. Ekki er ljóst hvort þau muni einnig koma til landsins á meðan á tökum stendur.