Hemmi beint á toppinn

Úr þætti „Á tali hjá Hemma Gunn“.
Úr þætti „Á tali hjá Hemma Gunn“.

„Ég hef aldrei velt mér upp úr áhorfstölum en auðvitað er þetta gleðilegt, alveg frábært,“ segir Egill Eðvarðsson dagskrárgerðarmaður en samkvæmt mælingu Capacent skaust þátturinn „Á tali við Hemma Gunn“ beint í efsta sæti yfir vinsælasta sjónvarpsefnið í síðustu viku.

Mældist þátturinn með 43,9% áhorf og fór m.a. upp fyrir Útsvar og Landann. Af 20 vinsælustu þáttunum var Sjónvarpið með 18. Spaugstofan, sem sýnd er á Stöð 2, kemst t.d. ekki inn á þennan lista.

Fyrsti þátturinn af 12 var sýndur fyrir viku, en í þeim mun Þórhallur Gunnarsson rifja upp með Hemma og góðum gestum þættina „Á tali með Hemma Gunn“ sem nutu gríðarlegra vinsælda í Sjónvarpinu á árunum 1987-1997.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert