Óvíst með Björn Val

Björn Valur Gíslason
Björn Valur Gíslason mbl.is/Ómar Óskarsson

Björn Valur Gíslason segist ekki hafa gert það upp við sig hvort hann muni sækjast eftir þingsæti fyrir næstu kosningar. Þetta kemur fram í svari þingmannsins við fyrirspurn Akureyrar vikublaðs.

Björn Valur segir: „Ég er ekki búinn að gera upp minn hug um hvort ég gef kost á mér og ef svo færi í hvaða sæti.“

Sóley Björk Stefánsdóttir fjölmiðlafræðingur hefur gefið kost á sér í annað sætið fyrir VG í NA-kjördæmi en vegna fléttulistafyrirkomulags liggur fyrir að kona muni verma annað sætið, að því gefnu að Steingrímur J. Sigfússon leiði listann og fái stuðning.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert