Magnús Orri Schram mun í dag stíga til hliðar sem formaður þingflokks Samfylkingar og lýsir jafnframt yfir stuðningi sínum við Oddnýju G. Harðardóttir til að taka við formennsku í þingflokknum.
Magnús Orri segir í tilkynningu:„Oddný G. Harðardóttir lét af formennsku þingflokksins þegar hún tók við starfi fjármálaráðherra um síðustu áramót. Nú, þegar Katrín Júlíusdóttir snýr til baka úr fæðingarorlofi, er eðlilegt að Oddný taki að nýju við formennsku í þingflokknum. Það er mér því heiður að stíga úr stóli formanns þingflokksins og um leið skora á Oddnýju að taka aftur við því starfi. Formennskutíminn hefur verið bæði lærdómsríkur og ánægjulegur og vil ég þakka félögum mínum í þingflokknum fyrir að hafa treyst mér fyrir þessu hlutverki.“