Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Suðurkjördæmis, var í dag kosin formaður þingflokks Samfylkingarinnar, en hún lét af því embætti í lok síðasta árs þegar hún settist í stól fjármálaráðherra.
Með Oddnýju voru kosin í stjórn þingflokksins þau Magnús Orri Schram, þingmaður Suðvesturkjördæmis sem vék sæti sem þingflokksformaður og var kosinn varaformaður, og Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Norðvesturkjördæmis, sem var kosin ritari.