Ragnar Þór Ingólfsson, stjórnarmaður í VR, hefur ákveðið að bjóða sig fram gegn Gylfa Arnbjörnssyni, forseta ASÍ. Forysta ASÍ verður kosin á þingi sambandsins fyrir hádegi.
Gylfi fékk einnig mótframboð á ársfundi ASÍ fyrir tveimur árum. Gylfi hlaut þá tæplega 73% greiddra atkvæða en Guðrún J. Ólafsdóttir frá VR fékk 27% atkvæða.