Jarðskjálftahrina á Norðurlandi hélt áfram í nótt. Stærsti skjálftinn var 4,1 stig og varð hann um kl. fimm í morgun. Hundruð skjálfta mældust. Áfram má búast við jarðvirkni samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands.
Jarðskjálftahrina með upptök syðst í Eyjafjarðarál úti fyrir Norðurlandi hefur verið í gangi síðan 20. október. Upptökin eru 19-20 kílómetra norðnorðaustur af Siglufirði og nokkru suðvestar en skjálftahrina sem varð í september síðastliðnum.