Jarðskjálftamælar Veðurstofunnar hafa mælt jarðskjálftavirkni í Vatnajökli í dag og í gær. Stærsti skjálftinn sem mælst hefur er upp á þrjú stig samkvæmt jarðeðlisfræðingi Veðurstofunnar.
Skjálftarnir eiga upptök sín í Kverkfjöllum. Benedikt Ófeigsson jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir að jarðskjálftarnir tengist líklega eldvirkni á svæðinu en ekki sé óalgengt að mælar nemi jarðskjálftavirkni á þessum slóðum. „Það er mjög algengt að fá jarðskjálftahrinu í Kverkfjöllum og er hún að öllum líkindum tengd því að þar er virk eldstöð,“ segir Benedikt.
Hann segir þetta ekki klingja sérstökum viðvörunarbjöllum. „Við finnum skjálftavirkni þarna í hverjum mánuði en ég get ekki sagt til um það hvenær síðasta hrina fannst þarna,“ segir Benedikt.