Lífeindafræðingar á Landspítalanum funduðu í dag með Guðbjarti Hannessyni velferðarráðherra en þegar stéttin gerði kjarasamninga í fyrrasumar var þar sérstök bókun um að launakerfi lífeindafræðinga yrði endurskoðað en ekki hefur verið byrjað á þeirri vinnu.
Á fundinum kom fram mikil óánægja lífeindafræðinga með kjör sín en eftir fjögurra ára háskólanám hafa þeir um 260 þús. kr. í mánaðarlaun og meðallaun eru í kring um þrjúhundruð þúsund.
Formaður samninganefndar félags lífeindafræðinga var ánægð með fundinn en á þó ekki von á miklum breytingum í bráð eftir svör velferðarráðherra.