Veðurfræðingur Vegagerðarinnar varar við ísingu á vegum mjög víða í nótt og í fyrramálið.
Það blotnar á vegum með rigningu eða slyddu víða á láglendi í kvöld vestan- og norðvestantil, en krapi eða snjór hærra uppi. Í nótt og snemma í fyrramálið léttir til og kólnar. Þá er hætt við að það myndist ísing á vegum mjög víða, einkum frá Suðurnesjum, vestur á firði og allt norður í Eyjafjörð. Á Vesturlandi eru hálkublettir á Holtavörðuheiði og Laxárdalsheiði.
Á Vestfjörðum er hálka á Kleifaheiði, Mikladal, Hálfdáni og Steingrímsfjarðarheiði. Snjóþekja er á Klettshálsi og Hrafnseyrarheiði en einnig eru sumstaðar hálkublettir.
Hálka er á Þverárfjalli og Öxnadalsheiði en hálkublettir á Vatnsskarði og víðar á Norðurlandi vestra. Hálka eða hálkublettir eru á flestum vegum á Norðausturlandi. Éljagangur og hálka er á Hófaskarði, Hálsum, í Þistilfirði og á Brekknaheiði.
Á Austurlandi er hálka á Fjarðarheiði, Vatnsskarði eystra en snjóþekja á Öxi. Hálkublettir eru allvíða á öðrum fjallvegum og sumstaðar á láglendi.