Loka þurfti þjóðveginum um Mývatnsöræfi í tæpa tvo tíma í morgun vegna slyss á brúnni við Grímsstaði á Fjöllum. Einn var fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri en meiðsl hans eru ekki talin alvarleg, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Húsavík.
Ekki liggur fyrir hvað olli slysinu en tveir bílar lentu í hörðum árekstri. Mikil hálka er á þessum slóðum. Blindhæð er á miðri brúnni og eru óhöpp algeng þar, að sögn lögreglu.