Hálka er á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku en hálkublettir á Laxárdalsheiði og Svínadal. Á Vestfjörðum er hált á Klettshálsi, Steingrímsfjarðarheiði, Dynjandisheiði og Hrafnseyrarheiði en hálkublettir eru á Þröskuldum og víðar.
Að mestu er autt í Húnavatnssýslum en annars er hálka víðast hvar á Norðurlandi. Varað er við flughálku á þjóðveginum í Blönduhlíð en þar er verið að sanda.
Á Austurlandi er snjóþekja í Bakkafirði, á Sandvíkurheiði og Vopnafjarðarheiði og eins á Öxi. Hálka er á Vatnsskarði eystra og á Oddsskarði en hálkublettir m.a. á Möðrudalsöræfum og Fagradal.