Veittist að dyravörðum og lögreglu

mbl.is/Eggert

Tvær líkamsárásir voru skráðar í miðborginni í nótt að sögn lögreglu. Í öðru tilfellinu veittist maður á fimmtugsaldri að dyravörðum og síðan lögreglumönnum sem voru við staðinn. Hélt hann því fram að dyraverðirnir hefðu litið konu hans hýru auga. Maðurinn gistir fangageymslu.

Í hinu tilfellinu tilfellinu brutust út átök á milli aðila sem voru mjög óljós. 

Nokkur erill var hjá lögreglumönnum, einnig var nokkuð um tilkynningar vegna hávaða í heimahúsum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert