Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur skipað nefnd sem gera á úttekt á neytendavernd á fjármálamarkaði og setja fram tillögur um hvernig styrkja megi stöðu einstaklinga og heimila gagnvart aðilum á fjármálamarkaði sem í atvinnuskyni veita einstaklingum neytendalán.
Meðal þeirra sem eiga sæti í henni eru fulltrúar Hagsmunasamtaka heimilanna og Neytendasamtakanna.
Nefndin er skipuð í samræmi við þingsályktunartillögu Alþingis um sama efni. Í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að í þeirri þingsályktunartillögu komi fram að nefndin skuli skoða verkaskiptingu Stjórnarráðsins og stöðu sjálfstæðra stofnana sérstaklega og gera tillögur um breytingar ef þörf krefur.
„Tillögur nefndarinnar skuli miða að því að bæta og skýra stöðu einstaklinga og heimila gagnvart aðilum á fjármálamarkaði sem veita einstaklingum lán og auka ábyrgð þeirra gagnvart þessum hópi neytenda. Við tillögugerðina hafi nefndin hliðsjón af stöðu neytenda samkvæmt reglum Evrópusambandsins og líti til framkvæmdar neytendaverndarmála annars staðar á Norðurlöndum. Nefndin skal jafnframt taka til sérstakrar skoðunar þann kostnað sem leggst á viðskiptavini fjármálafyrirtækja (e. switching costs) við flutning viðskipta á milli þeirra í samræmi við skuldbindingar íslenskra stjórnvalda gagnvart ESA.“
Gert er ráð fyrir því að nefndin hafi gott samstarf við Neytendastofu, talsmann neytenda, umboðsmann skuldara, Fjármálaeftirlitið, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök lánþega, Samkeppniseftirlitið og helstu samtök launafólks. Mælst er til þess að nefndin ljúki störfum eigi síðar en 15. janúar á næsta ári.