Veðurstofan vill vekja athygli á slæmu veðri sem spáð er næstu daga. Eftir miðjan dag á morgun verður komið norðan vonskuveður um landið norðanvert með vindhraða á bilinu 13-20 m/s.
Með þessu verður snjókoma og él og getur færð og skyggni spillst á skömmum tíma. Eins ættu menn sem hafa húsdýr úti við að huga að því að koma skepnum í skjól, samkvæmt tilkynningu frá Veðurstofunni.
Búast við mjög hvössum vindhviðum undir Vatnajökli frá því síðdegis á morgun og fram eftir vikunni.
Ekki er búist við að veður fari að batna fyrr en líður á næstu helgi og eins er að sjá að veður geti orðið enn verra á fimmtudag og föstudag.
Lengst af verður þurrt um landið sunnavert og ætti veðrið ekki að valda vandræðum þar. Gert er ráð fyrir að hiti verði um og undir frostmarki sunnantil á landinu næstu daga, en annars staðar verður frost 0 til 7 stig, segir í tilkynningu frá Veðurstofunni.