Sveitarstjórar og oddvitar sex sveitarfélaga og hreppa segja að stjórnvöld verði að bregðast við þeirri alvarlegu stöðu í innanlandsflugi sem upp er komin. Kemur áskorunin í kjölfar frétta af því að flugfélagið Ernir stefnir á að hætta öllu áætlunarflugi til minni áfangastaða á Íslandi.
Flugfélagið Ernir hefur haldið úti flugsamgöngum við Vestmannaeyjar, Húsavík, Höfn í Hornafirði, Bíldudal og Gjögur. Árið 2007 var gerður verksamningur við Flugfélagið Erni um áætlunarflug til Hafnar í Hornafirði, Bíldudals og Gjögurs.
Nú er svo komið að forsvarsmenn flugfélagsins Ernir sjá sér ekki fært að halda úti flugi til þessara staða þar sem kostnaður hefur vaxið mun meira en greiðslur ríkisins fyrir þetta áætlunarflug og skipta opinber gjöld þar mestu enda hafa þau að minnsta kosti þrefaldast.
Þrátt fyrir fjölgun farþega og hærri tekjur ber innanlandsflugið ekki þær auknu álögur sem á það er lagt. Þá er það mjög skýrt að falli áætlunarflug niður til þeirra áfangastaða sem samningurinn nær til verður forsendubrestur á áætlunarflugi til Húsavíkur og Vestmannaeyja.
„Það er alvarleg staða sem upp er komin og má benda á að innanlandsflugið eru einu samgöngur Árneshrepps við umheiminn að vetri til. Það er algerlega ólíðandi að stjórnvöld láti hjá líða að bregðast við þeirri stöðu sem upp er komin og skorum við á innanríkisráðherra að beita sér fyrir því að tryggja að leiðréttur verði strax sá forsendubrestur sem orðinn er á verksamningi ríkisins við Flugfélagið Erni svo tryggja megi áframhaldandi flugsamgöngur til áfangastaða félagsins,“ segir í áskoruninni
Undir hana skrifa Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar, Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri Norðurþings, Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyjarbæjar, Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, oddviti Tálknafjarðarhrepps, Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri sveitarfélagsins Hornafjarðar, og Oddný S. Þórðardóttir, oddviti Árneshrepps.