Félag Íslenskra atvinnuflugmanna, FÍA, fordæmir vinnubrögð Wow Air og lýsir því jafnframt yfir að flugmenn fagni samkeppni á flugmarkaði, svo lengi sem slík samkeppni er á jafnréttisgrundvelli.
„Það er sorglegt þegar fyrirtæki reyna að bjóða betra verð með því að vera með starfsfólk sem verktaka og brjóta þannig niður réttindi starfsfólks,“ segir í yfirlýsingu frá FÍA.