Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill koma því á framfæri að ekkert ferðaveður er á Kjalarnesi, Sæbraut og í næsta nágrenni við strandlengjuna þessa stundina þar sem sjór gengur á land. Kristinn Jón Eysteinsson tók myndband af særokinu á Sæbraut og deildi á Facebook-síðu sinni.