Þaksteinar fuku af þaki Alþingishússins um tvö leytið í dag og hafa björgunarsveitir lokað fyrir aðgengi að húsinu.
„Já, það er eitthvað örlítið búið að fjúka og björgunarsveitir komnar á staðinn,“ sagði talsmaður skrifstofu Alþingis í samtali við mbl.is.
Ekki er vitað hvort steinarnir hafi valdið slysum á fólki eða eignatjóni.