Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar ökumenn við að fara um Sæbraut þar sem hún liggur meðfram sjónum - sjórinn gengur yfir götuna og getur valdið mikilli hættu.
Mjög hvasst er á höfuðborgarsvæðinu. Allar björgunarsveitir hafa verið kallaðar út til að aðstoða fólk.