Akureyrarbær er ófær eða illfær að mestu nú í morgunsárið. Mikið hefur snjóað í nótt og er nú skafrenningur og skyggni mjög lélegt, að sögn lögreglunnar á Akureyri. Á Ísafirði hefur einnig snjóað töluvert í nótt en allt með kyrrum kjörum í bænum, að sögn lögreglu. Færð hefur spillst víða um land í nótt.
Þá var hvasst á höfuðborgarsvæðinu í nótt og er enn. Sem dæmi þá fór vindur í hviðum yfir 50 m/s á Geldinganesi í nótt samkvæmt mælum Veðurstofunnar.
Í dag er spáð norðanátt, víða stormi eða roki (20-25 m/s). Talsverð snjókoma verður á Norður- og Austurlandi, annars él. Frost 0 til 5 stig. Heldur hægari vindur austanlands seint í dag og slydda eða rigning þar.
Veðurstofan varar við stormi, vindhraða meiri en 20 m/s á landinu. Víða mjög snarpar vindhviður við fjöll, einkum á sunnanverðu landinu. Spáð er norðanillviðri á landinu fram á laugardagskvöld, en veður fer síðan batnandi.
Á höfuðborgarsvæðinu er spáð norðan 18-23 m/s og éljum í dag. Vægt frost.
Upp úr miðnætti voru björgunarsveitir kallaðar út á höfuðborgarsvæðinu en þá var orðið mjög hvasst og eitthvað um að þakplötur væru að losna og þá voru trampolín fjúkandi á nokkrum stöðum. Óljóst var nú í morgun um tjón af völdum veðurofsans, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar.
Trausti Jónsson veðurfræðingur skrifar pistil um norðankastið á bloggsíðu sína. Þar segir Trausti m.a.: „Í gær var fleygur af mjög köldu lofti sem lá til suðurs yfir landið og hafið vestur af. Nú er þessi fleygur kominn langt vestur af en hlýtt loft úr austri breiðist vestur yfir landið. Vindörvarnar sýna um 20 hnúta (10 m/s) vind af norðaustri yfir Vesturlandi en yfir Austurlandi er heldur sterkari austanátt. Mikill hitabratti er yfir landinu frá vestri til austurs.
Í grófum dráttum má segja að kalda loftið hrannist upp undan ásókn þess hlýja, við lendum í átökunum miðjum.“