Átta einstaklingar hafa boðið sig fram til þess að taka þátt í forvali Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Suðvesturkjördæmi.
Forvalið verður haldið 24. nóvember nk. Frestur til þess að gefa kost á sér í forvalið var til miðnættis þriðja nóvember.
Nöfn frambjóðenda í stafrófsröð og þau sæti sem viðkomandi sækist eftir:
Daníel Haukur Arnarsson, gefur kost á sér í 3.-5. sæti
Garðar H. Guðjónsson, gefur kost á sér í 2.-3. sæti
Guðbjörg Sveinsdóttir, gefur kost á sér í 4.-5. sæti
Lára Jóna Þorsteinsdóttir, gefur kost á sér í 5.-6. sæti
Margrét Pétursdóttir, gefur kost á sér í 2. sæti
Ólafur Þór Gunnarsson, gefur kost á sér í 1. sæti
Rósa Björk Brynjólfsdóttir, gefur kost á sér í 2. sæti
Ögmundur Jónasson, gefur kost á sér í 1. sæti