Tólf teknir fyrir akstur undir áhrifum

Tólf ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Átta þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, tveir í Kópavogi og einn í Hafnarfirði og Mosfellsbæ. Sjö voru teknir á laugardag og fimm á sunnudag, segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Þetta voru átta karlar á aldrinum 19-52 ára og fjórar konur, 29-60 ára. Fimm þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert