Ríkislögreglustjóri telur ástæðu til þess að vara við tölvuþrjótum sem undanfarna daga hafa hringt í fólk á Íslandi undir því yfirskyni að þeir starfi hjá tölvufyrirtækinu Microsoft.
Fólki er sagt að það hafi uppgötvast tölvuvírus í tölvu viðkomandi og boðin er fram aðstoð til þess að lagfæra vandann í gegnum síma. Fólk er beðið um að sýna varkárni og ekki undir neinum kringumstæðum að láta glepjast af slíkum tilboðum, segir í aðvörun ríkislögreglustjóra.