Sólheimar harma niðurstöðu Hæstaréttar Íslands í máli Sólheima gegn íslenska ríkinu.
Hæstiréttur Íslands kemst að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkinu hafi verið heimilt að skerða fjárveitingu til Sólheima þó svo að Sólheimar hafi einir þjónustuveitenda í málefnum fatlaðra verið skertir á fjárlögum ársins 2009.
„Það er verulegt áhyggjuefni að velferðarráðuneytið og aðrir opinberir aðilar geti mismunað þjónustuveitendum,“ segir í yfirlýsingu frá Sólheimum.
„Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Sólheimum í vil og var sá dómur vel rökstuddur.
Á tímum þar sem ítrekað er rætt um gagnsæi, réttlæti og jafnræði, þá vekur niðurstaða Hæstaréttar Íslands í senn furðu og vonbrigði,“ segir í yfirlýsingunni.