Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, mun leiða lista flokksins í Suðvesturkjördæmi. Bjarni hlaut 2.728 atkvæði af 5.070 eða 54%. Ef aðeins er miðað við gild atkvæði hlaut Bjarni 55,54% atkvæða. Ragnheiður Ríkharðsdóttir verður í öðru sæti, Jón Gunnarsson í því þriðja, Vilhjálmur Bjarnason í fjórða sæti og Elín Hirst í því fimmta.
Niðurstaða prófkjörsins varð þessi:
Aðrir frambjóðendur hlutu færri atkvæði.
Alls voru greidd 5.070 atkvæði í prófkjörinu. Auðir og ógildir seðlar voru 159 talsins.