Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, er með 57% atkvæða í fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í SV-kjördæmi eftir að talin hafa verið 3998 atkvæði. Ragnheiður Ríkharðsdóttir alþingismaður er með flest atkvæði þegar atkvæði í sjö efstu sætin eru lögð saman.
- Bjarni Benediktsson - 2266 atkvæði í 1. sæti
- Ragnheiður Ríkharðsdóttir - 1772 atkvæði í 1. – 2. sæti
- Jón Gunnarsson - 1875 atkvæði í 1. – 3. sæti
- Vilhjálmur Bjarnason - 1931 atkvæði í 1. – 4. sæti
- Elín Hirst - 2078 atkvæði í 1. – 5. sæti
- Óli Björn Kárason - 2150 atkvæði í 1. – 6. sæti
- Karen Elísabet Halldórsdóttir - 1667 atkvæði í 1. – 7. sæti
Aðrir frambjóðendur hafa hlotið færri atkvæði.
Nánari skipting atkvæða.