„Ekki vonbrigði,“ segir Katrín

Katrín Júlíusdóttir í kvöld.
Katrín Júlíusdóttir í kvöld. mbl.is/Eggert

„Við Árni Páll erum bæði að fá gott endurkjör og fyrir það er ég afar þakklát,“ segir Katrín Júlíusdóttir fjármálaráðherra eftir að úrslit lágu fyrir í prófkjöri Samfylkingarinnar í SV-kjördæmi.

Katrín fékk næstflest atkvæði í 1. sæti listans, alls 910 atkvæði. Hins vegar fékk hún 1.364 atkvæði í 1.-2. sæti. Hún segir það ekki vonbrigði að hafa ekki náð að tryggja sér efsta sæti listans. „Nei, nei þetta eru engin vonbrigði. Við fáum endurkjör í sömu sæti og í síðustu kosningum og það er gott mál,“ segir Katrín.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert