Árni Páll Árnason sigraði í Prófkjöri Samfylkingarinnar í SV-kjördæmi en úrslit voru kunngjörð nú fyrir stundu.
Efstu sæti röðuðust þannig:
1. Árni Páll Árnason 1041 atkvæði
1-2. Katrín Júlíusdóttir 1364 atkvæði
1-3.Magnús Orri 1250 atkvæði
1-4. Margrét Gauja Magnúsdóttir 898 atkvæði
1-5. Lúðvík Geirsson 1105 atkvæði
Lúðvík var í fjórða sæti en féll niður í það fimmta vegna fléttulistafyrirkomulags.
Greidd atkvæði voru 2179.
2098 voru gild.
Talning atkvæða tafðist á meðan farið var yfir um 200 sem gefin voru með hefðbundnum hætti. Stærstur hluti atkvæða var gefinn í rafrænni kosningu.