Þeim fjölgar sem vilja afturkalla ESB-umsóknina

Höfuðstöðvar Evrópusambandsins í Brussel.
Höfuðstöðvar Evrópusambandsins í Brussel. mbl.is/afp

Meiri­hluti þjóðar­inn­ar vill aft­ur­kalla um­sókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu (ESB). Þetta kem­ur fram í blaði Heims­sýn­ar sem dreift er með Morg­un­blaðinu í dag.

Heims­sýn fékk Capacent Gallup til að kanna af­stöðu þjóðar­inn­ar til ESB-um­sókn­ar­inn­ar. Svör­in sýndu að 53,5% vilja aft­ur­kalla um­sókn­ina, 36,4% vilja halda henni til streitu og 9,9% voru hlut­laus. Könn­un­in var gerð á net­inu í sept­em­ber og októ­ber 2012.

Capacent Gallup spurði sömu spurn­ing­ar fyr­ir Heims­sýn sum­arið 2011. Þá vildi 51% aft­ur­kalla um­sókn­ina og 38,5% voru henni hlynnt. Nýja könn­un­in sýn­ir því að þeim fjölg­ar sem vilja aft­ur­kalla ESB-um­sókn­ina.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert