Flokksval Samfylkingar í Suðurkjördæmi

 Kosning hefst á miðnætti fimmtudaginn 15. nóvember í flokksvali Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Um 3500 eru á kjörskrá, flokksmenn og stuðningsmenn sem höfðu skráð sig 9. nóvember. Kosningu lýkur kl. 18.00 laugardaginn 17. nóvember.

 Um netkosningu er að ræða. Farið er inn á vefsíðu flokksins, xs.is, og „Flokksval 2012“ valið.

Hægt er að kjósa í hvaða nettengdu tölvu sem er. Þeir sem hafa ekki aðgang að nettengdri tölvu eða eru ekki með aðgang að heimabanka geta kosið á fjórum kjörstöðum í Suðurkjördæmi föstudag 16. nóvember og laugardag 17. nóvember kl. 13.00-17.00:

 Reykjanesbær: Salur Verslunarmannafélags Suðurnesja, Vatnsnesvegi 14

Selfoss: Samfylkingarsalurinn, Eyravegi 15

Vestmannaeyjar: Alþýðuhúsið við Skólaveg Höfn í Hornafirði: Víkurbraut 4, 2. hæð

 Í framboði eru þau: Arna Ír Gunnarsdóttir, félagsráðgjafi og bæjarfulltrúi Árborg, sem gefur kost á sér í 3. sæti, Árni Rúnar Þorvaldsson, kennari og bæjarfulltrúi Höfn, í 2.-4. sæti, Bergvin Oddsson, háskólanemi Reykjavík, í 3. sæti, Björgvin G. Sigurðsson, alþingismaður Árborg,  í 1. sæti, Bryndís Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Hveragerði, í 1.-4. sæti, Guðrún Erlingsdóttir, heilsumeistaranemi Vestmannaeyjum, í 2.-3. sæti, Hannes Friðriksson, vinnueftirlitsmaður Reykjanesbæ, í 3. sæti, Kristín Erna Arnarsdóttir, verkefnisstjóri og háskólanemi Reykjavík,  í 3.-4. sæti, Oddný G. Harðardóttir, þingflokksformaður Garði, í 1. sæti, Ólafur Þór Ólafsson, framkvæmdastjóri og bæjarfulltrúi Sandgerði, í 2.-3. sæti og Soffía Sigurðardóttir, húsfreyja  Árborg, sem gefur kost á sér í 3. sæti.

 Niðurstaða flokksvalsins er bindandi í 4 efstu sæti listans og paralistaaðferð verður beitt til að tryggja jafnt hlutfall kynja.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert