Á ellefta tímanum í gærkvöldi var tæplega fertugur karlmaður handtekinn í Hafnarfirði eftir að hafa veitt öðrum manni áverka með hníf.
Sá sem fyrir árásinni varð mun ekki vera alvarlega slasaður. Þarna munu hafa orðið átök á milli kunningja, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.