Engin slys urðu á fólki þegar flutningabíll fullur af fiski fór út af á þjóðvegi 1, við bæinn Rauðháls í Mýrdal, í morgun. Afar hált er á þessum slóðum, en mikil hálka myndaðist á veginum í nótt.
Bíllinn valt ekki, en hann þurfti að afferma, því létta þurfti bílinn til að geta komið honum aftur upp á veginn og komu starfsmenn Landflutninga og Framrásar í Vík að því verki. Annar flutningabíll kom síðan á vettvang til að flytja fiskinn á leiðarenda.