Össur: Öryggisráði ber að grípa inn í

Össur Skarphéðinsson.
Össur Skarphéðinsson. Ómar Óskarsson

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra ítrekar áhyggjur sínar af stigvaxandi hernaðarátökum á Gaza og fordæmir áframhaldandi árásir Ísraela á Gaza, sem og eldflaugaárásir Hamas-samtakanna á Tel Aviv og Jerúsalem.

Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að utanríkisráðherra kalli eftir því „að tafarlaust verði bundinn endi á gagnkvæmar árásir. Ekki sé hægt að sitja aðgerðalaus hjá á meðan líkur aukast dag frá degi á landhernaði Ísraela á Gaza, með tilheyrandi hörmulegum afleiðingum fyrir óbreytta borgara, sem ekkert hafa til saka unnið.“

Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna beri skylda til að álykta um málið og gera sitt til að skakka leikinn sem fyrst. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert