Asahláka er nú á Siglufirði og afar hvasst var þar í morgun. Götur eru þar víða umflotnar vatni, svo gangandi vegfarendur eiga erfitt með að komast leiðar sinnar. Mikið snjóaði þar bæði í gær og í fyrradag og nú er þar um 10 stiga hiti.
„Í þessari vindátt, austnorðaustan, verða hviðurnar svo svakalegar og það ræðst ekki við eitt eða neitt,“ segir Ómar Geirsson, sem er í svæðisstjórn björgunarsveitarinnar Stráka á Siglufirði. „Nú er austanátt og blankalogn, en allt er á floti.“
Björgunarsveitarmenn voru kallaðir út um sexleytið í morgun vegna foks á þakplötum, en plötur fuku af þaki bílaverkstæðis í bænum. „Svo þurftum við að hemja járnplötur sem fuku út um allan bæ, En þetta var svo snemma að það var lítið um gangandi fólk, sem betur fer,“ segir Ómar.