Matvælastofnun hefur ákveðið að kæra til lögreglu innflutning á notuðum reiðtygjum, en við innflutningseftirlit á Seyðisfirði 13. nóvember sl. var stöðvaður innflutningur á notuðum reiðtygjum. Um var að ræða hnakk, ólíkar gerðir múla, gjarðir, hlífar, píska, hestaábreiðu, reiðhanska o.fl.
Matvælastofnun segir að það veki athygli að samferðamaður skráðs innflytjanda setti sig í samband við Tollgæsluna tveimur vikum fyrir komuna til landsins í upplýsingaleit. Tollgæslan benti viðkomandi á að strangar reglur giltu um innflutning á reiðtygjum og bað hann um að hafa samband við Matvælastofnun sem hann gerði. Matvælastofnun upplýsti viðkomandi um að innflutningur notaðra reiðtygja væri með öllu bannaður. Sömu upplýsingum var komið á framfæri með skriflegum hætti, til skráðs innflytjanda og samferðamanns u.þ.b. viku fyrir innflutninginn með milligöngu utanríkisráðuneytisins.
„Mikil hætta er á að notuð reiðtygi og ósótthreinsaður reiðfatnaður beri með sér smitefni sem valdið getur alvarlegum dýrasjúkdómum hér á landi. Er þar skemmst að minnast faraldurs smitandi hósta sem lamaði alla hestatengda starfsemi árið 2010. Ábyrg afstaða til sjúkdómavarna á að sjálfsögðu að vera efst í huga allra hestamanna og er öflugasta vörnin gegn því að sjúkdómar berist til landsins,“ segir í frétt frá Matvælastofnun.
Matvælastofnun mun kæra málið til lögreglu en fyrirhugað er að láta eyða reiðtygjunum.