Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að umræða um fyrirhugaða nauðasamninga við gömlu bankana sé á nokkrum villigötum. Málið sé þó eitt af stóru málunum á borðum ríkisstjórnar, Seðlabanka Íslands og Alþingis.
Þetta er meðal þess sem fram kom í ræðu forsætisráðherra í sérstökum umræðum á Alþingi í dag um stöðu þjóðarbúsins, en málshefjandi var Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. Greint er frá þessu á vef stjórnarráðsins.
Jóhanna sagði einnig að staða heimila og fyrirtækja héldi áfram að batna og eignir umfram skuldir hefðu aukist um 17% í fyrra frá árinu áður. Skuldir fyrirtækja og heimila væru nú um 280% af landsframleiðslu en hefðu verið 510% þegar þær náðu hámarki haustið 2008.
„Umræðan um fyrirhugaða nauðasamninga gömlu bankana er á nokkrum villigötum.
Við skulum ekki fara í neinar grafgötur um að þetta mál er og verður eitt af stóru málunum á borði þessarar ríkisstjórnar, Seðlabankans og Alþingis.
Það er hins vegar alveg ljóst að Seðlabankinn fékk yfirráð yfir útgreiðsluferlinu með lögunum frá 12. mars sem er afar mikilvægt.
Seðlabankinn hefur því regluvaldið þegar kemur að útstreymi gjaldeyris og hann mun ekki setja neinar reglur sem gætu ógnað hér lífskjörum eða markmiðum um fjármálastöðugleika eða þjóðhagsvarúð.
Mikilvægt er að vinna málið áfram í sátt og senda erlendum kröfuhöfum þau skýru skilaboð að pólitísk staða á Íslandi breyti engu um meðhöndlun þeirra því einhugur sé um að ganga eins langt í vörn fyrir íslenska hagsmuni og lög og þjóðréttarlegar skuldbindingar leyfa.
Aukinn hagvöxtur, minna atvinnuleysi, lægri skuldir, minnkandi verðbólga, jafnari lífskjör og meiri bjartsýni á meðal heimila og fyrirtækja eru allt merki að við séum á réttri leið. Auðvitað er margt enn óunnið en allir helstu hagvísar sýna merki um batnandi hag,“ sagði Jóhanna á Alþingi í dag.