Jarðskjálfti upp á 3,2 varð nærri Kverkfjöllum norður af Vatnajökli eftir hádegið í dag. Ekki hafa fylgt smærri skjálftar í kjölfarið.
Upptök skjálftans var um 5,4 km vestur af Kverkfjöllum.
Kverkfjallasvæðið er virk og umfangsmikil megineldstöð. Af og til koma fram skjálftahrinur á mælum með upptök í Kverkfjöllum. Síðast mældist þar skjálfti af svipaðri stærð fyrir einum mánuði.