Jólasveinar mættir í Dimmuborgir

Jólasveinar í Dimmuborgum.
Jólasveinar í Dimmuborgum. Ljósmynd/641.is

Jólasveinar eru farnir að sjást í Dimmuborgum í Mývatnssveit. Í gær tóku þeir Þvörusleikir og Askasleikir á móti fólki í Dimmuborgum, en eins og alþjóð veit eru Dimmuborgir lögheimili Íslenska jólasveinsins.

Þetta kemur fram á vefnum 641.is. Jólasveinarnir munu taka á móti gestum allar helgar fram að jólum og hið árlega jólabað þeirra verður svo 8. desember í Jarðböðunum í Mývatnssveit.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert