Níu frambjóðendur hafa lýst þátttöku í forvali VG í Norðausturkjördæmi. Steingrímur J. Sigfússon býður sig einn fram í fyrsta sætið en þrjár konur stefna á annað sætið.
Frambjóðendur í forvalinu eru í stafrófsröð:
Ásta Svavarsdóttir - 3. – 4. sæti
Bjarkey Gunnarsdóttir – 2. sæti
Bjarni Þóroddsson – 3.-6. sæti
Björn Halldórsson – 3. sæti
Edward H Huijbens - 3. sæti
Ingibjörg Þórðardóttir – 2. sæti
Sóley Björk Stefánsdóttir – 2. sæti
Steingrímur J Sigfússon – 1. sæti
Þorsteinn Bergsson – 3. sæti
Efnt verður til póstkosningar um 6 efstu sæti framboðslista VG í Norðausturkjördæmi. Frestur til að greiða atkvæði verður til 10. desember. Síðasti dagur til að skrá sig í flokkinn til að hafa atkvæðisrétt er 30. nóvember.
VG fékk þrjá menn kjörna í NA-kjördæmi í síðustu kosningum.