Sigurður Erlingsson, framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, segir að ummæli Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur, formanns velferðarnefndar, um hugsanlega endurskipulagningu á lánum sjóðsins hafi verið óheppileg. Lokunin í dag hafi komið sér illa og truflun hafi orðið á viðskiptum.